|
Viltu tilboð í þjónustu!!!
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar
Gerðu það sem þú gerir best - það gerum við
Sérhæfing í verkferlum á fjármálasviði Fjárstoð er eitt stærsta fyrirtækið á íslenskum markaði sem sérhæfir sig í útvistun verkferla á fjármálasviði. Þjónusta fyrirtækisins felst í framkvæmd allra þátta sem heyra undir fjármálasvið fyrirtækja, færslu bókhalds, afstemmingum, launavinnslum, reikningagerð, greiðslu reikninga, gerð ársreikninga og skattaframtala, mánaðar-, bráðabirgða- og árshlutauppgjöra, framsetningu lykilstærða í fjárhag, áætlanagerð ofl.
Beindu kröftum þínum að kjarnastarfsemi þinni Fjárstoð byggir starfsemi sína á þeirri staðreynd að sífellt fleiri vel rekin fyrirtæki telja hagsmunum sínum betur borgið með því að einbeita kröftunum að kjarnastarfsemi sinni - að því einu sem skapar bein verðmæti fyrir fyrirtækið og hluthafa þess - en láta sérhæfða þjónustuaðila annast rekstur stoðdeilda.
Betri upplýsingar um lykilstærðir í rekstri Starfsfólk Fjárstoðar hefur áralanga reynslu af framsetningu fjármálaupplýsinga. Framsetningu sem stenst strangar kröfur nútímastjórnenda um að hafa á hverjum tíma fullkomið yfirlit yfir mikilvægar rekstrar- og efnahagsstærðir fyrirtækja sinna. Framsetning upplýsinga byggir annars vegar á stöðluðum reglubundnum yfirlitum um lykilstærðir og hins vegar á sérstökum skýrslum sniðnum að þörfum viðskiptavina hverju sinni.
Lægri kostnaður - meiri gæði Með því að útvista þá þætti í rekstri sem ekki teljast til kjarnasviðs hafa viðskiptavinir okkar notið aukinnar hagkvæmni við framkvæmd þeirra verkefna sem heyra undir fjármálasvið. Að sama skapi eru það markmið Fjárstoðar í samningum við viðskiptavini að, lækka kostnað við rekstur stoðdeilda á fjármálasviði, betri og skilvirkari verkferla, aðgang að sérfræðiþekkingu og víðtækri reynslu fagfólks, fagleg vinnubrögð og aðferðir sem samræmast ýtrustu gæðakröfum.
|